Flýtilyklar
Héðinsfjarðargöng
Myndir frá gerð Héðinsfjarðarganga
2007, 2008
Undirsöfn
- <Upp um eina möppu>
-
Fimmtudagur 6. nóvember 2008
Ekkert hefur verið sprengt í göngunum Héðinsfjarðamegin síðustu daga. Þar er talan 1566 metrar, 24 frá síðasta fimmtudegi.6 Myndir
6.nóv.2008 -
Fimmtudagur 30. október 2008
Alls voru þeir komnir 1442 metra, samtals 44 metra frá síðasta fimmtudegi í Héðinsfjarðargöngum í morgun Héðinsfjarðarmegin.34 Myndir
30.okt.2008 -
Fimmtudagur 23. október 2008
Svipaður gangur hefur verið í Héðinsfjarðargöngum þessa vikuna og í síðustu viku. Þeir eru komnir í 1398 metra, eða 55 m. frá síðasta fimmtudegi Héðinsfjarðarmegin27 Myndir
23.okt.2008 -
Fillann !
“Lífið á Sigló” fékk far með Guðna Sveins á olíubíl Olíudreifingar í gær. Hann fer daglega með olíu til Háfells og Metrostav sem vinna við verkefni tengd Héðinsfjarðagöngunum29 Myndir
20.okt.2008 -
Fimmtudagur 16. október 2008
Frekar rólega hefur gengið við gröftinn í Héðinsfjarðargöngum þessa viku. Alls eru komnir Héðinsfjarðarmegin 1343 metrar eða 45 metrar frá síðasta fimmtudegi.21 Myndir
16.okt.2008 -
Fimmtudagur 9. október 2008
Sæmilega hefur gengið í göngunum Héðinsfjarðarmegin síðustu viku. Þar eru þeir komnir í 1299 metra, eða 48 metra frá síðasta fimmtudegi.24 Myndir
9.okt.2008 -
Fimmtudagur 2. október 2008
Alls var búið að sprengja 1250 metra inn í göngin Héðinsfjarðarmegin eða 67 metra frá síðasta fimmtudegi.36 Myndir
2.okt.2008 -
Fimmtudagur 25. september 2008
Þokkalega hefur gengið við sprengingar í göngunum Héðinsfjarðarmegin undanfarið. 1183 metrar komnir, 68 metrar frá síðasta fimmtudegi.16 Myndir
25.sep.2008 -
Fimmtudagur 18. september 2008
Í morgun klukkan 08:00 var verið að snyrta nibbur og ójöfnur eftir að grjótinu frá síðustu sprengingu í göngunum fyrr um morguninn hafði verið fjarlægt. Héðinsfjarðarmegin fyrr um morguninn. Alls eru þeir komnir 1115 metra inn eða 65 metra frá síðasta fimmtudegi.31 Myndir
18.sep.2008 -
Fimmtudagur 11. september 2008
Klukkan 08:00 í morgun voru Metrostavmenn komnir í 1050 metra inn Héðinsfjarðarmegin, eða aðeins 44 metra. Bergið hefur ekki verið eins og best er kosið, þó er ekkert vatn að angra þá.32 Myndir
11.sep.2008 -
Fimmtudagur 4. september.
Eitt þúsund metra markinu er náð frá Héðinsfirði í átt til Ólafsfjarðar og komnir voru í morgun Héðinsfjarðarmegin 1006 metrar, 46 metrar frá fimmtudegi til fimmtudags.31 Myndir
4.sep.2008 -
Fimmtudagur 28. ágúst 2008
Héðinsfjarðarmegin í morgun um klukkan 08:00 voru Metrostavmenn komnir í 960 metra, 63 metra frá síðasta fimmtudegi. Bergið hefur verið þokkalegt mest af vikunnar.23 Myndir
28.ágú.2008 -
Fimmtudagur 21. ágúst 2008
Í morgun er við heimsóttum Héðinsfjarðargöng Héðinsfjarðarmegin voru þeir komnir í 897 metra, 67 metra frá síðasta fimmtudegi.21 Myndir
21.ágú.2008 -
Fimmtudagur 14. ágúst 2008
Héðinsfjarðargöng Í morgun voru göngin Héðinsfjarðarmegin orðin 830 metrar, 70 metrar frá síðasta fimmtudegi.25 Myndir
14.ágú.2008 -
Fimmtudagur 7. ágúst 2008
Héðinsfjarðargöng Fimmtudagur 7. ágúst 2008 Í morgun klukkan 08:30 var verið að enda við keyra út úr göngunum eftir síðustu spengingu. Göngin eru orðin 760 metrar, það er 57 metrar frá síðasta fimmtudegi14 Myndir
7.ágú.2008 -
Fimmtudagur 31. júlí 2008
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin voru komin í 703 metra í morgun, það er 74 metra frá síðasta fimmtudegi29 Myndir
31.júl.2008 -
Fimmtudagur 24. júlí 2008
Héðinsfjarðargöng Vel gengur í Héðinsfjarðargöngunum Héðinsfjarðarmegin, en þar eru þeir komnir í 629 metra, og samtals frá síðasta fimmtudegi hafa verið sprengdir 69 metrar. Þar er ekkert vatn að angra menn, og þurrt og þokkalegt berg að eiga við15 Myndir
24.júl.2008 -
Miðvikudagur 23 júlí 2008
Já nú er hægt að segja "Allt á floti alstaðar" eins og segir textanum. Þetta ætlar enga endir að taka hjá okkur hérna Ólafsfjarðarmegin með þetta fjandans vatn, það varð að fara með öll tæki út úr göngunum í dag meðan verið var að ræsta göngin því það fór allt á flot eftir sprengingu í nótt.27 Myndir
23.júl.2008 -
Fimmtudagur 17. júlí 2008
Héðinsfjarðargöng í morgun voru Metrostav menn komnir í 560 metra, eða 78 metra frá síðasta fimmtudegi. Vel hefur gengið eins og sést á tölunum. Ekkert vatn og gott berg30 Myndir
17.júl.2008 -
Fimmtudagur 10 júlí 2008
Alls eru þeir komnir í 482 metra eða aðeins 27 metra frá síðasta fimmtudegi. Vatn hefur verið að angra þá, þó ekki eins mikið og Ólafsfjarðarmegin12 Myndir
10.júl.2008 -
Fimmtudagur 3. júlí 2008
Héðinsfjarðargöng Vatn og aftur vatn er á ferðinni nú í göngunum Héðinsfjarðarmegin. Fyrst var það leirkennt bergið og nú er það vatn sem angrar þá. Aðeins 35 metrar náðust frá síðasta fimmtudegi eða alls 455 metrar.24 Myndir
3.júl.2008 -
Fimmtudagur 26. júní 2008
Héðinsfjarðargöng Í morgun var verið að keyra út mórauðu leirkenndu bergi innan úr göngunum Héðinsfjarðarmegin. Alls eru þeir komnir í 420 metra.26 Myndir
26.jún.2008 -
Fimmtudagur 19. júní 2008
Héðinsfjarðargöng Í morgun eftir síðust sprengingu, voru þeir komnir í 379 metra, 79 metra frá síðasta fimmtudegi. Vel hefur gengið eins og sjá má á tölunum.33 Myndir
19.jún.2008 -
Fimmtudagur 12. júní 2008
Héðinsfjarðargöng Í morgun voru þeir komnir í 300 metra, 60 metra frá síðasta fimmtudegi. Ekki lá mjög vel á Metrostav mönnum í morgun.40 Myndir
12.jún.2008 -
Fimmtudagur 5. júní 2008
Héðinsfjarðargöng Héðinsfjarðarmegin boru komin í 240 metra en vel hefur gengið báðum megin eða samtals 150 metrar frá fimmtudegi til fimmtudags37 Myndir
5.jún.2008 -
Fimmtudagur 29. maí 2008
Héðinsfjarðargöng Í morgun klukkan 09:00 voru Metrostav menn komnir 164 metra inn í fjallið Héðinsfjarðarmegin, það er 59 metra frá síðasta fimmtudegi. Vel hefur gengið hjá þeim og ekki dropi af vatni í berginu.36 Myndir
29.maí.2008 -
Fimmtudagur 22. maí 2008
Héðinsfjarðargöng. Þokkalega vel hefur gengið Héðinsfjarðarmegin frá síðasta fimmtudegi eða alls 55 metrar og eru þeir því komnir í 105 metra á móti þeim Ólafsfjarðarmegn sem komnir eru í 3164 metra.31 Myndir
22.maí.2008 -
Fimmtudagur 15. maí 2008
Héðinsfjarðargöng í morgun. Þegar ég kom á vettvang inni í Héðinsfjörð heyrði ég drunur og sá reyk stíga út úr gangamuna Héðinsfjarðarganga austantil í firðinum. Það var verið að sprengja eina öfluga. Fyrir sprenginguna var lengd ganganna Héðinsfjarðarmegin 44,7 metrar28 Myndir
15.maí.2008 -
Fimmtudagur 8. maí 2008
Alls voru þeir komnir inn í bergið 7,8 metra klukkan 9 í morgun, á leið til ólafsfjarðar, en þeir voru að enda við að bora fyrir fyrstu hleðslu dagsins er ég kom, og hófu svo til með að hlaða. Bergið lítur mjög vel út og árennilegt.34 Myndir
8.maí.2008 -
Fimmtudagur 1. maí
Að venju á fimmtudögum skrapp ég og heimsótti Héðinsfjarðargöng í morgun. Þar voru Metrostav menn við vinnu, þó svo að í dag væri 1. maí og sinntu sínum verkum án tillits til dagatalsins15 Myndir
1.maí.2008 -
Fimmtudagur 24. apríl 2008
Unnið að undirbúningi til að geta hafist handa við borun á móti austanmönnum17 Myndir
24.apr.2008 -
Fimmtudagur 17. apríl 2008
Metrostav menn voru við ýmis verk í morgun, meðal annars að vinna að styrkingu gangamunnans að austanverðu. Háfellsmenn voru hinum megin fjarðarins33 Myndir
17.apr.2008 -
Fimmtudagur 10. apríl 2008
Heimsókn í Héinsfjörðinn ofl.18 Myndir
10.apr.2008 -
Sunnudagur 6. apríl 2008
Fyrstu álætlunarferðirnar til Héðinsfjarðar í gegn um Héðinsfjarðargöng, í boði Fjallabyggðar45 Myndir
6.apr.2008 -
Fimmtudagur 3. apríl 2008
Myndir frá deginum: Formleg sprenging vagna síðasta haftsins inn í Héðinsfjörð + veisla í tilefni dagsins147 Myndir
6.apr.2008 -
Fimmtudagur 27. mars 2008
Komið í gegn til Héðinsfjarðar, frá Siglufirði21 Myndir
27.mar.2008 -
Föstudagur 21. mars 2008
Það væri synd að segja að ekki hafi legið vel á Metrostav mönnum og öðrum þeim er viðstaddir voru “síðustu” sprenginguna í Héðinsfjarðargöngum í dag klukkan 15:30 er dagsbirtan frá Héðinsfirði lýsti upp gangamunnann.43 Myndir
21.mar.2008 -
Fimmtudagur 20. mars 2008
Alls var í morgun klukkan 08:20 búið að sprengja 3644 metra inn í bergið. Bergið er mjög gott, getur raunar vart verið betra, þétt og þurrt. Innan við 20 metrar eftir16 Myndir
20.mar.2008 -
Fimmtudagur 13. mars 2008
Vel hefur gengið í Héðinsfjarðargöngum Siglufjarðarmegin, gott berg og ekkert vatn. Alls eru metrarnir orðnir 3588, 70 metrar frá fimmtudegi til fimmtudags, og aðeins 72 metrar eftir “I hope” sagði sá er tölurnar færði mér og brosti.19 Myndir
13.mar.2008 -
Fimmtudagur 6. mars 2008
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin. Þokkalega hefur gengið hjá Metrosavmönnum frá síðasta fimmtudegi. Alls eru metrarnir inn göngin orðnir 3518 og í framhaldi af því aðeins 142 metrar eftir í Héðinsfjörðinn.27 Myndir
6.mar.2008 -
Fimmftudagur 28. febrúar 2008
Þokkalega hefur gengið í Héðinsfjarðargöngum frá síðasta fimmtudegi, það eru nú komnir 3461 metrar inn. - 67 metrar þessa törn.25 Myndir
28.feb.2008 -
Fimmtudagur 21. febrúar 2008
Ekki hefur gengið of vel að bora og sprengja í Héðinsfjarðargöngum Siglufjarðarmegin. Komin eru 3397 metrar inn og eitthvað um 200 metrar rúmir, eftir23 Myndir
24.feb.2008 -
Fimmtudagur 14. febrúar 2008
Það er fimmtudagur í dag svo ég fót inn í Héðinsfjarðargöngin Siglufjarðarmegin að eins og venjulega. Þar var verið að keyra út eftir síðustu sprengingu og því fátt um mannskap, nema gröfumann og bílstjóranna sem þutu á 50-60 km hraða fram og aftur um göngin. Fullfermdir og tómir til skiptis samkvæmt eðli málsins. 3370 metrar11 Myndir
14.feb.2008 -
Fimmtudagur 7. febrúar 2008
Sæmilega hefur gengið í Héðinsfjarðargöngunum Siglufjarðarmegin frá síðasta fimmtudegi, þó ekki eins vel og Ólafsfjarðarmegin, en alls eru komnir 3345 metrar rúmir inn, eða 55 metrar frá síðasta fimmtudegi.20 Myndir
7.feb.2008 -
Miðvikudagur Ólafsfjarðatmegin
Jón HRJ - Skrapp í heimsókn inn í Héðinsfjarðargöng Ólafsfjarðarmegn í gærdag, enda langt síðan ég hef heimsótt mína menn þarna inni. 6. feb. 2008 = 2450 metrara14 Myndir
7.feb.2008 -
Fimmtudagur 31. janúar 2008
Ég fór að venju inn í Héðinsfjarðargöng í morgun eins og aðra fimmtudaga. Ekki hefi ég alveg nákvæmar tölur um lengd ganganna en held mig við 3290 metra og 41 metir frá fimmtudegi til fimmtudags42 Myndir
31.jan.2008 -
Fimmtudagur 24. janúar 2008
Héðinsfjarðargöng Vatn og losaralegt berg hefur verið að angra Metrostav menn í göngunum Siglufjarðarmegin að undanförnu. En aðeins 32 metrar hafa bæst við síðan á fimmtudag, eða samtals 3249 metrar.16 Myndir
24.jan.2008 -
Fimmtudagur 17. janúar 2008
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin í morgun voru komin í 3217 metra. Þokkalega hefur gengið fyrrihluta vikunnar fimmtudags til fimmtudags eða um 62 metrar alls.30 Myndir
17.jan.2008 -
Fimmtudagur 10. janúar 2008
Héðinsfjarðargöng Starfsmenn Metrostav komu úr jólafríinu sínu síðastliðinn laugardag og hófu strax vinnu við Héðinsfjarðargöngin beggja megin. Siglufjarðarmegin eru þeir komnir í 3155 metra14 Myndir
10.jan.2008 -
Fimmtudagur 20. desember 2007
Ég var komin inn í Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin klukkan 06:00 í morgun, en það var ekki seinna vænna þar sem starfsmenn Metrostav eru í að fara í jólafrí og síðast vaktin að ljúka störfum. Alls eru komnir 3109.2 metrar inn.9 Myndir
20.des.2007 -
Fimmtudagur 13. desember 2007
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin í morgun. Göngin voru í morgun komin í 3060 metra og eru nú aðeins 640 metrar eftir til að ná inn í Héðinsfjörðinn8 Myndir
13.des.2007 -
Fimmtudagur 6. desember 2007
Þokkalega hefur gengið við Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin, en alls hafa þeir frá fimmtudegi til fimmtudags sprengt 45 metra eða samtals 2990 metra. Ekki hefur vatn tafið þá því vinnusvæði þeirra er óvenju þurrt að sjá.27 Myndir
6.des.2007 -
Ólafsfjarðarmegin 4. des 2007
Ég fór í dag inn í göngin svona bara til að skoða hvernig gengi hjá okkar mönnum þeir voru ný búnir að keyra út og voru að byrja að bora þegar mig bar að garði.Nú gengur þetta vel ekkert vatn og ekkert misgengi þeir eru bara í fínum málum þessa stundina sprengja 5.metra í einu, þeir voru nýkomnir fram hjá útskoti og eru komnir um 2070 metra. -- Kv. Jón H.9 Myndir
4.des.2007 -
Fimmtudagur 29. nóvember 2007
Vinnan við Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin gengur vel og voru þeir komnir í 2945 metra er ég kom þangað í morgun, það er 65 metrar frá fimmtudegi til fimmtudags.17 Myndir
29.nóv.2007 -
Fimmtudagur 22. nóvember 2007
Vel hefur gengið að bora og sprengja í Héðinsfjarðargöngum Siglufjarðarmegin. Komnir voru 2880 metrar inn í bergið þegar ég mætti í morgun, en verið var að hreinsa til eftir síðustu sprengingu10 Myndir
22.nóv.2007 -
Fimmtudagur 15. nóvember 2007
Vel hefur gengið Siglufjarðarmegin en komnir eru 2803 metrar inn, eða 84 metrar frá síðasta fimmtudegi. Þó hefur leðja, eða mold verið að tefja þá eitthvað.........16 Myndir
15.nóv.2007 -
Fimmtudagur 8. nóvember 2007
Héðinsfjarðargöng - Mjög vel hefur gengið hjá starfsmönnum Metrostav síðustu daga miðað við vikurnar þar á undan og eru þeir komnir í 2719 metra.19 Myndir
8.nóv.2007 -
Fimmtudagur 1. nóvember 2007
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegin í morgun voru orðin 2660 metra löng.24 Myndir
1.nóv.2007 -
29 Myndir
25.okt.2007 -
Fimmtudagur 18. október 2007
Héðinsfjarðargöng Siglufjarðarmegi voru orðin 2629 metra löng í morgun. Þokkalega hefur gengið seinnipart vikunnar en eins og komið hefur fram var vatn að angra þá í síðustu viku.20 Myndir
18.okt.2007 -
Fimmtudagur 11. október 2007
Héðinsfjarðargng Siglufjarðarmegin 2601 m.32 Myndir
11.okt.2007 -
Fimmtudagur 20. september 2007
Vel gekk inni í Héðinsfjarðargöngum Siglufjarðarmegin í morgun, alls hafa 89 metrar bæst við síðan síðastliðinn fimmtudag á sama tíma, eða alls komnir 2490 metrar inn í fjallið.24 Myndir
22.sep.2007 -
18 Myndir
22.sep.2007



