Fréttir

Héðinsfjarðargöng

Ekkert hefur verið sprengt í göngunum Héðinsfjarðamegin síðustu daga. Þar er talan 1566 metrar, 24 frá síðasta fimmtudegi, en síðasta sprengingin þar í bili var um mánaðarmótin.

Bormaskínan og mannskapurinn hefur verið fluttur í göngin Siglufjarðarmegin, þar sem nú er unnið af kappi við snyrtingu ganganna, borað fyrir netfestingum og síðan fóðrað osfv. Reiknað er með að Metrostav menn verði þar að minnsta kost alla næstu viku. 

Háfellsmenn voru á fundi fram til 08:30 um það leiti sem ljósmyndarinn yfirgaf svæðið.

Fáar myndir voru því teknar í ferðinni í morgun en þær eru
HÉR.

 
zskot_3147_120


Ólafsfjarðarmegin eru þeir komnir í 4035 metra eða 35 frá síðasta fimmtudegi. Þar eru þeir enn að berjast við vatn.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning