Vonbrigði !
Aðsendar greinar - þriðjudagur 4.nóv.08 00:04 - Steingrímur - Lestrar 534

Frá Ólafsfirði
Ekkert verður af undirskrift samnings vegna stofnunar nýs framhaldsskóla í Ólafsfirði.
Sveitarstjóri Fjallabyggðar segir tíðindin gríðarleg vonbrigði.
Nýr framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð átti að taka til starfa næsta haust, a.m.k að hluta til. Á miðvikudag stóð til að skrifað yrði undir samning um stofnun skólans.
Nú er hins vegar ljóst að ekkert verður af þeim áformum. Jón Eggert Bragason, verkefnisstjóri vegna undirbúnings að stofnun skólans, segir ástæðuna vera skýr fyrirmæli Fjármálaráðuneytisins um að stofna ekki til nýrra skuldbindinga.
Heimildir



