Annálar


Rafveita Siglufjarðar var vígð 18. desember 1913. "Hvanneyraráin er notuð til lýsingar þessarar," segir í Aldarminningunni. "Frá stöðinni er rafmagnið síðan leitt með koparþráðum á stólpum um allt kauptúnið." Rafstöðin, sem lengi var nefnd Ljósastöðin, telst nú vera við Hólaveg.

Sama dag var nýtt barnaskólahús við Norðurgötu vígt. Húsið var byggt "af steinsteypu, reisulegt og mjög vandað," segir í Aldarminningunni. Rögnvaldur Ólafsson húsameistari teiknaði húsið.
Við vígsluathöfnina í barnaskólahúsinu hélt séra Bjarni Þorsteinsson ræðu. Guðrún Björnsdóttir skólastjóri minntist athafnarinnar hálfri öld síðar og komst þannig að orði: "Um leið og ræðumaðurinn sleppti síðasta orðinu, var, eftir bendingu hans kveikt á rafljósunum. Aldrei gleymi ég þeirri hrifningu og fagnaðaröldu, sem leið um salinn frá manni til manns þegar tindrandi sólbjörtu ljósin rufu skammdegismyrkrið svo skyndilega."

Úr bókinni Siglfirskur annáll eftir Þ. Ragnar Jónasson.
======================================================

Ólafur Jónsson vinnumaður frá Dalabæ í Úlfsdölum fórst í snjóflóði 14. desember 1827. Hann var 27 ára.
Í bókinni Skriðuföll og snjóflóð segir að Ólafur hafi farist í Herkonugili, milli Engidals og Dalabæjar
.

Úr bókinni Siglfirskur annáll eftir Þ. Ragnar Jónasson.
======================================
9. desember árið 1814 urðu þrír menn úti í hríð á Siglufjarðarskarði. Þeir fundust á fimmta í jólum. Frá þessu er m. a. sagt í prestsþjónustubók Hvanneyrar og Annál nítjándu aldar.
Í tíðavísum Jóns Hjaltalín segir: "Kafaldsneyðin kulda blá / klakann harða barði, / sú nam deyða seggi þrjá / á Siglufjarðarskarði."
Úr bókinni Siglfirskur annáll eftir Þ. Ragnar Jónasson.

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning